24.02.2010 20:17:00 / sigrun
Tíminn er svo fljótur að líða að það hálfa væri nóg stundum, þó reyndar finnist mér hann hafa staðið í stað í mánuð eða svo. En ef ég lýt til baka, þá get ég ekki annað sagt en bara VÁ
og ég er búin að búa í DK í yfir 3 ár og á afmæli á morgun, HVAÐ ER ÞAÐ
En það er svo sem alveg búið að vera í nógu að snúast þessa daganna, hef verið að reyna selja búslóðin hérna í DK, sem hefur bara tekist nokkuð vel, örfáir hlutir eftir, og kaupa annað í staðinn frá hinum ýmsu stöðum sem ég er FREKAR mikið sátt með
því hér á bæ er verið að pakka niður og fara til Íslands eftir rúma 2 mánuði eða svo...DK ævintýrið að verða búið í bili
Það verður nú bara ágætt held ég, alltaf gaman að flytja sig til og prufa eitthvað nýtt, ætli það sé ekki lika bara lítill flakkari í mér, þar sem ég er nú ágætlega vön flutningum, fer kannski svo bara til Kanada eða eitthvað næst...aldrei að vita...en ég ætla sem sagt að klára námið mitt í háskólanum á íslandi
En tíminn hérna í DK er búin að vera bæði góður og slæmur, hér hef ég kynnst mörgu skemmtilegu og þroskuðu fólki sem er bara alveg fræabært
En ég hef líka lært margt bæði í námi og starfi sem ég tek með mér í gegnum lífið, en svo er það auðvitað lika svo margt sem ég hefði viljað fara öðruvísi að, sem ég þarf að taka fulla ábyrgð á og læra af
en auðvitað er enginn fullkominn og maður gerir bara eins vel og maður getur, þannig er það bara
Held að þetta sé bara it, for nowHilsen Sigrún Helga
»
17.11.2009 10:59:15 / sigrun
...Sá sem hefur gleymt, hefur fyrirgefið,
en sá sem vill fyrirgefa, verður að gleyma...
»
14.11.2009 21:28:15 / sigrun
...Tears on my pillow,
pain in my heart...
»
13.11.2009 00:04:56 / sigrun
..Elskaðu mig mest,
þegar ég á það síst skilið..
»
12.11.2009 15:59:16 / sigrun
Aldrei er of seint, gott að gera
»
11.11.2009 16:47:28 / sigrun
...Auðvelt er að komast hjá gagnrýni
með því að segja ekkert,
gera ekkert og vera ekkert...
...A pessimist sees the difficulty in every opportunity;
an optimist sees the opportunity in every difficulty...
»
10.11.2009 16:39:44 / sigrun
...Slappleiki á taugum og svo
þessi eilífa syfja, eða sárindi
að innan ryfja og óþægindi
í einhverskonar mynd, oftast
báðum megin við þind.
Yfir höfðinu er þessi þráláti
svimi, en þreyta gagntekur
alla limi...
»
07.11.2009 19:45:00 / sigrun
...Draumur djúpt í hvers manns geði,
drífur áfram lífið, fært í hlekki.
Vonin eftir varanlegri gleði,
er varanleg, en það er
gleðin ekki...
»
04.11.2009 00:18:01 / sigrun
1. Sit in a straight, comfortable chair in a well lit place in front of your
computer.
2. Log onto MSN and ICQ (be sure to go on away!). Check your email.
3. Read over the assignment carefully, to make certain you understand it.
4. Walk down to the vending machines and buy some chocolate to help you
concentrate.
5. Check your email.
6. Call up a friend and ask if he/she wants to go to grab a coffee. Just
to get settled down and ready to work.
7. When you get back to your room, sit in a straight, comfortable chair in a
clean, well lit place.
8. Read over the assignment again to make absolutely certain you understand it.
9. Check your email.
10. You know, you haven't written to that kid you met at camp since fourth
grade. You'd better write that letter now and get it out of the way so you can
concentrate.
11. Look at your teeth in the bathroom mirror.
12. Grab some mp3z off of kazaa.
13. Check your email. ANY OF THIS SOUND FAMILIAR YET?!
14. MSN chat with one of your friends about the future. (ie summer plans).
15. Check your email.
16. Listen to your new mp3z and download some more.
17. Phone your friend on the other floor and ask if she's started writing yet.
Exchange derogatory emarks about your prof, the
course, the college, the world at large.
18. Walk to the store and buy a pack of gum. You've probably run out.
19. While you've got the gum you may as well buy a magazine and read it.
20. Check your email.
21. Check the newspaper listings to make sure you aren't missing something truly
worthwhile on TV.
22. Play some solitare (or age of legends!).
23. Check out bored.com.
24. Wash your hands.
25. Call up a friend to see how much they have done, probably haven't started
either.
26. Look through your housemate's book of pictures from home. Ask who everyone
is.
27. Sit down and do some serious thinking about your plans for the future.
28. Check to see if bored.com has been updated yet.
29. Check your email and listen to your new mp3z.
30. You should be rebooting by now, assuming that windows is crashing on
schedule.
31. Read over the assignment one more time, just for heck of it.
32. Scoot your chair across the room to the window and watch the sunrise.
33. Lie face down on the floor and moan.
34. Punch the wall and break something.
35. Check your email.
36. Mumble obscenities.
37. 5am - start hacking on the paper without stopping. 6am -paper is finished.
38. Complain to everyone that you didn't get any sleep because you had to write
that stupid paper.
39. Go to class, hand in paper, and leave right away so you can take a nap.
»
03.10.2009 11:35:55 / sigrun
Kominn 3 okt, allready, FLJÓTT að líða, september mánuður er bara buinn að rúlla framhjá manni...
Það er bara róleg og notaleg helgi framundan hjá mér, sem er svooo gott öðru hvoru, og sérstaklega í þessu tussuveðri sem er hérna í nesinu í dag
En ég er bara enn i atvinnuleit, litið að hafa þessa daganna, talaði við lederinn á gamla praktíkstaðnum minum og hann ætlaði að vera i bandi við mig ef eitthvað væri laust hjá honum, svo ég bið bara og vona það, annars ætla ég að fara annan hring á mánudaginn, ómögulegt fyrir píuna að vera ekki með neinar tekjur, það er alveg ómögulegt sko
U2 er að koma i hrossanesið á næsta ári og er fólk gjörsamlega buið að vera trillt að reyna að ná miðum á báða tónleikanna, og var ég meðal annars ein af þeim sem fór snemma i bæinn i morgun, eeeen það er uppselt á þá
Það er alveg að bresta á vetrarfrí hérna í skólunum í dk, og það var eh pæling að fara kannski til póllands en veit ekki hvernig það verður, litill peningur til og vatnskassinn i bilnum ekki alveg upp á sitt besta þessa daganna, en það er svona eh verið að vinna í þvi... en Sigrún og bílar...æiii ég veit ekki, það virðist bara alltaf enda í eh vitleysu
Við stelpurnar hérna á kolleginu hittumst alltaf á þriðjudögum og á þriðjudaginn næsta er svo komið að mér að halda stelpuhitting, þannig að ég þarf að fara á hraðnámskeið í bakstri...STRAX
En jæja, ætli ég láti þetta ekki duga i bili, þar sem er svo mikið tussuveður hérna, þá er ég að pæla í að henda mer i lopasokkanna og fá mér te, og kúra upp í rumi undir sæng og horfa á eins og einn gossip þátt...
hilsen frá danmörku
p.s. Ef þið viljið tryggja ykkur gott álit...skulu þið leitast við að vera það sem þið viljið að fólk haldið að þið séuð
Góða helgi
»
17.09.2009 18:28:22 / sigrun
Vá það liggur sko við að ég væri búin að gleyma lykilorðinu hérna inn, það er orðið aðeins of langt síðan ég bloggaði eh síðast
En ég tók þá ákvörðun að geyma restina af náminu í háskólanum í smá tíma og fara vinna, svo þessa daganna er ég bara að leita mér að vinnu. Er búin að sækja um sem pædagog medhjælper og lika hjá kommunnunni og svo auðvitað vikar, svo vona bara að ég fari nú að fá eitthvað að gera fljótlega
En eins og ég hef talað um i færslunum á undan þá verð ég auðvitað að minnast á mözduna rauðu, en það var tekin sú ákvörðun að fara bara með hana á hauganna, svo að hún er DAUÐ
, ég er bara ágætlega sátt með það, því við erum komin á þennan fínasta bimma í staðinn
Annars er ég farin að hreyfa á mér rassgatið aftur og við Fanney erum farnar að fara út að skokka saman og svo er bara borðað boost inn á milli, veit samt ekki alveg hvernig ég á að fara að því næstu daga þar sem blandarinn gaf upp öndina og það kom bara hvílíkur reykur upp úr gæjanum sko
og afgangnum að peningunum fyrir þennan mánuð var nebla varið í annað og STÆRRA
Annars er ennþá rosa gott veður hérna í danaveldi og ennþá svolítið rakt, svo það er ágætt, samt ekki eins heitt eins og var hér i sumar sem betur fer...En við pallz erum búin að kaupa miða til íslands til að vera yfir jólin því þetta bara hækkar og hækkar, en það var nú meira djös vesið í dag þegar ég var að panta, hef nota bene ALDREI lent í því svona, fyrst pantaði ég vitlausa dagsetningu og svo sneri eg þeim við og þetta var bara rugl fra a-ö, en sem betur fer voru þær hja iceland express svo elskulegar að hjalpa mér
Annars fer ég fljótlega að henda inn myndum á facið, þa rtil næst...Hilsen frá dk...
»
05.07.2009 11:02:18 / sigrun
Hitinn hérna í danaveldi er sko ekki búið að vera neitt grín undanfarna daga, þetta er bara eins og versta spánaveður sko, bara um 30 stig
míns buin að brenna og allar græjur, svo er bara sofið með viftu og enga sæng og maður er samt í svitabaði, svo er maður bara hálfber allan daginn, það verður nú fínt að komast aðeins í goluna á klakanum
meira að segja þó að hafi rignt aðeins í gær, þá var maður bara alveg yes, en nei nei, þá var rakinn bara ennþá meiri að maður svitnaði bara við að standa upp sko...
En nú eru gunni bró og co, alfarin til íslands, og ég verð að viðurkenna að það er mjög tómlegt hérna án þeirra
maður var nátturulega með annan fótinn svo mikið hjá þeim...
4. önn í háskólanum búin, fer reyndar ekki aftur í próf fyrr en jafnvel í desember, svo það er alveg slatti í það ennþá, afgangurinn verður svo bara að koma í ljós...
Palls er líka buinn í prófi og gekk honum bara alveg ágætlega, hann er reyndar að drepast í ristinni sinni þessa daganna, svo maður er bara hérna í þjónustuhlutverkinu
Annars er bara verið að þrífa og þvo þvott á þessu heimili, og gera sig reddí fyrir köben og svo sumarfrí til íslands, það er rosalega mikið af fólkinu hérna farið heim í frí, svo það er ekki mikið um að vera hérna nuna.
En spenningurinn alveg að magnast, 3 dagar í frí
»
17.06.2009 10:23:20 / sigrun
Núna er skólinn alveg að verða búinn hjá mér, þessa önnina, fer í omprøven 29 juni, og svo er 4 önn í háskólanum búin
En við vorum að klára kulturverkefni nuna i skolanum, sem var þannig að við vorum með festival fyrir einn skóla hér í bæ, en þar eru börn af 38 þjóðernum og það hverfi er eitt af fátækari hverfum hérna í Horsens, mjög skemmtilegt það
Núna erum við komin í gang með að gera slutt fest fyrir skólann minn og svo þurfum við að halda dimmiteringu fyrir þau sem eru að klára nuna 7 önn, en þetta verður allt saman 26 júni, og allan daginn og fram á kvöld
Annars er nu ekki mikið að frétta svo sem, gunni bró og gunna eru búin í prófum og þau eru svona eitthvað byrjuð að pakka niður og selja fullt líka, þvi þau eru að flytja heim um miðjan júlí og ætla að flytja á Keilir. Svo er frænka hennar Gunnu og kæróinn hennar flutt hingað til Horsens og hun er að fara í nám í haust...
En við erum lika buin að kaupa flug to the land of ice and snow, og er lending 8 júlí, það er alltaf svo fínt að komast aðeins í annað umhverfi og safna kröftum aftur
Væri fínt að komast í eins og eina útilegu og eitthvað svoleiðis, alveg bara ár og aldir síðan síðast, en það verður bara allt að koma í ljós... En jæja þarf að fara henda mér í tíma aftur
Hilsen Sigrún Helga...
»
03.05.2009 16:07:29 / sigrun
Ég bara spyr, hvar værum við ef við ættum ekki þessar tölvudruslur
já það er stór spurning, kvalatí tæm í að læra, ég meina margt í boði...ég er allavega ALLTOF mikið í minni, stundum meira en ég nenni sjálf, það er meira að segja farið að sjóða á henni og ég kann ekki að laga það, ennnn held samt áfram í henni, alveg magnað...
En nú er ekkert mjög langt í próf hjá mér, fer í próf 28 mai minnir mig, og þetta er þannig að ég þarf að skrifa ritgerð út frá problemstillingu og svo þarf ég að framleggja líka, svo ég þarf eiginlega að að fara að koma mér alvarlega í startholurnar og byrja á þessu, það er bara svooo erfitt finnst mér, lika veðrið hérna þessa daganna ekki til að bæta það, hvílíkur hiti sko...en ég er bara 1-2 daga í viku í skólanum fram að prófinu, hina daganna eigum við að nota í lærdóm...
Á föstudagskvöldið fór ég til Jennyar sem er gömul vinkona frá Selfossi, en hun var að flytja með familíuna syna hingað til Horsens, og kom Hófy, Gugga og Íris með mer, það var mjög huggulegt, sátum bara á spjalli fram á kvöld...
Á laugardaginn fór ég svo og sótti bílinn til hennar og kíktum við þá í smá spjall út á svalir í hvílíkum hita, eftir það kíkti ég svo aðeins á Syvíu og Tidda í smá köku, svo var bara matarboð hjá Gunna og Gunnu í gær, mjög næs það...
Dagurinn í dag er svo buinn að fara í það að hugsa um að kíkja í bækur...
Mamma er að koma ENN EINA FERÐINA... hun er að koma til g og g og verður í 10 daga að þessu sinni, og tekur svo Ásgeir með sér heim til ísl og verður með hann í 3 vikur og mamma hennar g fer svo með hann aftur út, brjál að gera...
Sumarið er enn sem komið er sooooldið óráðið hjá mér, veit eiginlega ekkert hvað ég á af mér að gera, en það hlýtur að koma bara í ljós aðeins siðar...
Bíllinn, bíllinn, bíllinn, alltaf sama djös ves með hann, hann er handónytur, fær enga skoðun og ég var buinn að kaupa varahluti fyrir marga marga péninga sem var bara ekkert að gera sig, og nu liggur péningurinn bara í inneignarnótu útí bæ, ég held að ég fari með bílinn á hauganna fljótlega og kaupi bara aðra druslu fyrir 3000 dkk...
well held að það sé kominn tími í að borða kjúlla fljótlega og henda sér svo í tölvuna, AGAIN...
hilsen....
»
13.03.2009 09:54:32 / sigrun
Maður einhvernveginn gleymir bara að blogga og skoða blogg eftir að facebook varð svona vinsælt
maður einhvernveginn fréttir baraallt á facinu....
En ég er nú samt ekki alveg hætt að blogga fyrir því, bara líður greinilega aðeins lengra á milli
En skólinn hjá mer er á fullu, er nuna i profil sem heitir interelle kulture kompitencer, og það er mjög áhugavert, erum að skoða svona mismunandi culture og allt þar fram eftir götunum, er i gruppu og við erum að leggja áherslu á börn eða íslendinga almennt sem búa i danmörku, hvernig það er og hvernig er svo að flytja heim aftur og solleis, nóg að gera
Ég varð svo 26 ára um daginn,ætlaði nu varla að trua því, fannst ég svooooo gömul þegar ég varð 24 ára, og svo ef ég hitti fólk sem finnst ég vera ung þá finnst mer það alveg æðislegt.... en það var enginn veisla eða neitt svoleiði, bara smá kaffi. Gunni bróðir átti lika afmæli i febrúar og var með smá afmælisparty þá, og mamma og pabbi voru hérna og amma magga og svona, svo það var bara frábært
Bíllinn, bíllinn bíllinn, já það er alltaf eh með þennan bíl minn
fór með hann i skoðun um daginn og fekk endurskoðun, svo var aftur farið með hann i skoðun i gær og fekk hann aftur endurskoðun, en sem betur fer ekkert alvarlegt, aaaaalveg spurning með að fara með hann á hauganna bara
nei nei segi svona, góður bíll
Benni bróðir er fluttur, fékk íbúð í 3 mánuði, en þarf svo að finna sér eitthvað eftir þann tima, en hann er nuna heima á íslandi og kemur aftur út eftir helgi, og en ekki hvað, mútter kemur með honum
en það er búið að vera ves hjá gunnu og gunna með yngri strákinn hann Ásgeir, sefur lítið sem ekkert og bara grenjar og grenjar, ekki gott, og þau eru bara farin að vera með vaktaskipti á næturna
En í kvöld er bekkjarparty hjá þeim ogvar ég búin að taka að mér að passa báða strákanna, svo það verður fjör hjá okkur í kvöld
En jæja verð eiginlega að hætta í bili, þar sem ég er í tíma, erum öll að kynna verkefnin okkar, hvað það er sem hver grúppa ætlar að vinna með, spennó, spennó
»
Síður:
1 2 3 ...
19